|
66. Fiskiþing var haldið á Grand Hótel Reykjavík föstudaginn 27. apríl 2007. Þema þingsins var “sjávarútvegur og menntun”. Fjallað var um málefnið út frá þremur sjónarhornum. Í fyrsta lagi var fjallað um hvaða þarfir er fyrir hendi í greininni. Í öðru lagi var reynt að varpa ljósi á hvað boðið er uppá varðandi menntun bæði innan og utan skólakerfisins. Í þriðja lagi var leitað eftir áliti þeirra sem starfa í greininni á því hvernig tekst að mæta þeim þörfum sem eru fyrir hendi.
Flutt voru fjölmörg góð og fróðleg erindi og óhætt að segja að gestir á Fiskiþingi hafi fengið góða umfjöllun og fræðslu um málefnið.
Fiskifélag Íslands þakkar öllum þeim sem tóku þátt í 66. Fiskiþingi fyrir þátttökuna.
Þau erindi sem voru flutt á Fiskiþingi og eru tiltæk er hægt að nálgast hér.
|