10. mars 2005Þessa vikuna stendur yfir í Róm fundur fiskimálanefndar Matvæla- og landbúnaðarstofnunar Sameinuðu Þjóðanna (FAO). Á fundinum náðist í dag sá merki áfangi að samþykktar voru leiðbeinandi reglur um umhverfismerkingar sjávarafurða. Segja má að það með sé lokið áralangri baráttu fyrir því að FAO setti slíkar reglur. Norrænu ríkin og þá ekki síst Íslands hafa verið leiðandi í þessu starfi FAO og hefur Fiskifélag Íslands verið virkt í því starfi. Reglurnar eiga að tryggja betri trúverðugleika umhverfismerkja og samræmdar kröfur.