15. desember 2004Þann 14. desember kom Árni M. Mathiesen sjávarútvegsráðherra ásamt föruneyti í heimsókn á skrifstofu Fiskifélags Íslands á Akureyri. Með ráherranum voru þau Vilhjálmur Egilsson ráðuneytisstjóri, Ármann Ólafsson aðstoðarmaður ráðherra og Arndís Steinþórsdóttir skrifstofustjóri. Þetta var fyrsta heimsókn sjávarútvegsráðherra til Fiskifélagsins eftir flutning þess til Akureyrar. Gestirnir sátu stjórnarfund í Fiskifélaginu þar sem menn skiptust á skoðunum um ýmis mál er varða hagsmunabaráttu sjávarútvegsins og samstarf ráðuneytisins og Fiskifélagsins. Starfsmenn og stjórn Fiskifélagsins þakka ráðherra og hans fólki kærlega fyrir komuna.
Frá heimsókn sjávarútvegsráðherra 14. des 2004.Kristján Þórarinsson, Aðalsteinn Baldursson, Örn Pálsson, Vilhjálmur Egilsson,Árni Bjarnason og Árni M. Mathiesen sjávarútvegsráðherra.