|
10. ágúst 2004
Árlega halda norrænir ráðherrar, sem fara með sjávarútvegs-, landbúnaðar-, matvæla- og skógræktarmál fundi með embættismönnum og fulltrúum þessara atvinnugreina. Ísland fer með formennsku í þessu starfi í ár og verður fundurinn haldinn á Akureyri dagana 12. og 13. ágúst 2004.
Þeir fundir sem verða haldnir eru af margvíslegu tagi. Fyrir utan sameiginlegan fund, þar sem ráðherrar, embættismenn og fulltrúar allra atvinnugreinanna mæta, verða sérfundir embættismanna og fundir sem fulltrúar atvinnugreinanna halda sín á milli. Fiskifélagið stendur fyrir almennum fundi fulltrúa sjávarútvegs á norðurlöndum á fimmtudag þar sem kynnt verða ýmis mál sem eru ofarlega á baugi í alþjóðlegri umræðu um sjávarútveg og rætt um hugsanlegt samstarf hagsmunasamtaka greinarinnar á norðurlöndum. Þá stendur félagið fyrir vinnufundi um umhverfismerki sjávarafurða, en félagið hefur látið þau mál verulega til sín taka á undanförnum árum. Alls hafa rúmlega 200 manns boðað komu sína til Akureyrar í tilefni þessara funda og þar af munu 13 ráðherrar koma.
|