14. febrúar 2006JSK
Í janúartölublaði Fishing News International er fjallað um ágreiningsmál sem komið er upp á vesturströnd Kanada um hvað sé raunverulega mikilvægt fyrir íbúa British Columbia: fullkomin líffræðileg fjölbreytni laxastofnsins eða hagkvæm nýting hans.
Fraser áin er ein stærsta laxveiðiá Kanada og síðast ár var veiðin aldrei opnuð vegna þess að fyrstu laxagöngurnar voru óvenju seinar og blönduðust við aðrar veikari göngur. Það er þekkt að um er að ræða mismunandi laxastofna sem ganga í ánna. Sumir vísindamenn og svo kallaðir umhvefisverndarsinnar telja að mikilvægara sé að vernda líffræðilega fjölbreytni laxastofnanna heldur en að halda ánni opinni fyrir veiðum.
Sú veika ganga sem mest hefur verið fjallað um gengur í Cultus vatnið sem tengist ánni. Þar á laxinn undir högg að sækja vegna vatnakarfa sem leggst á laxaseiðin og þörungagróðurs, sem m.a. er tilkominn vegna mikillar byggðar í kringum vatnið. Samtök veiðimanna hafa boðist til að veita háum upphæðum til að byggja upp þennan veika stofn, m.a. með því að halda vatnakarfanum í skefjun og setja upp langtíma áætlun til að minnka þörungagróðurinn í þeirri von að þannig sé hægt að auka við nýtingartímann. Það er skoðun veiðimannanna að það sé ekki vegna ofveiði sem stofninn er veikur, heldur vegna breytinga á búsvæði hans.
Yfirvöld hafa hafnað tilboðum samtaka veiðimanna og vilja frekar einbeita sér að friðunaraðgerðum.